Til að geta leigt hjá okkur posa ef þú hefur ekki leigt áður þá þarf að framkvæma eftirfarandi skref.
Skref 1: Gerið samning við kortafyrirtækin
Til að geta leigt af okkur posa þá þarf að byrja á því að gera samninga við kortafyrirtækin Borgun, Kortaþjónustuna eða Valitor eftir því hver sér um uppgjörið. Hér að neðan eru hlekkir á kortafyrirtækin:
Borgun Kortaþjónustan Valitor
Skref 2: Kortafyrirtækin senda upplýsingarnar
Biðjið kortafyrirtækin að senda upplýsingarnar til okkar.
Skref 3: Afhending
Hafðu samband við okkur í síma 544-5060 eða með því að senda tölvupóst á ahaettustyring (hja) point.is og láttu okkur vita hvernig posa þú vilt, hversu marga og leigutegund. Posann sækirðu svo til okkar eða við sendum hann til þín í pósti. Ef þig vantar einhverja aðstoð með posann þá geturðu haft samband við okkur í gegnum síma eða tölvupóst.